Ég veit að við
skrifum nú venjulega bara um Blackburn B og annað
bull en það er hvort eð er ekkert að gerast hjá
okkur svo núna verð ég bara að gerast algjör lúði og
tala um MORFÍS keppnina í gær.
Sem var einmitt sama dag og
Bjössi varð 19 ára.
Maður er rétt að ná sér
niður núna en hausverkurinn hverfur ekkert á næstunni. Sjaldan ef
ekki aldrei hef ég verið eins stoltur af því að vera FS-ingur
og í gær.
Ok það var sem sagt ræðukeppni í gær og
mættust Flensborg og FS í Flensborg. Ég efast um að margir FS-ingar
hafi nokkurn tímann látið detta sér það í hug að mæta á svona
keppni en fólkið mætti. Ég hef ekki töluna en við erum að tala um
þrjár troðfullar rútur (ég sat á gólfinu á heimleiðinni) plús
heeeeellingur af fólki á einkabílum. Og litla stemninginn, sjiiitt,
ég fékk gæsahúð niður í tær. Og ég frétti að Ívar
Kristjáns hafi rústað einhverjum fjórum aulum í
trommusólói, helvítis Hafnfirðingar, kunna sig ekki.
Eins skildist mér að það hafi verið
dúndurfílingur í rútunum, Sigurjón Digri og fleira.

„Ég hef aldrei séð
eins marga FS-inga samankomna á einum stað, nema kannski í
matarhléinu á fimmtudögum þegar pítsa er í matinn “ -Guðmundur
Viktorsson

Framlag Flensborgara:
Blátt fólk með gular tennur. Stóra tölvunördið þarna mætt á svæðið,
hann fór beint heim í Warcraft og grét sig svo í svefn.

Afi hans Bensó var alveg tussuflottur, sjáið
hann lengst til hægri. Mikill andlegur stuðningur þar á ferð, ég
býð honum kók og prins við tækifæri. Mamma hans líka reyndar nokkuð
nett. Bensó ættleiddur?
Vá ég get ekki hætt að hugsa um þessa
samstöðu sem allt í einu er komin í FS, og ég get ekki neitað því
að ég er helvíti stoltur.
Annars nenni ég ekkert að vera að þræða
keppnina út í gegn, tek bara nokkra punkta og drulla yfir ákveðið
fólk, því eins og Gummi sagði þá læt ég fólki líða illa ef það á
það skilið.
Við vorum flottust. Við áttum salinn og við
áttum sviðið. Við vildum ver skemmtilegir og okkur tókst það og
auðvitað höfum við ekki hugmynd um hvernig maður á að vinna svona
keppnir því við höfum aldrei séð svona keppni.

Gummi var svo svalur að
mér er bara alls ekki sama. Uppistandari svo sannarlega.
Gjallarhorn, festir spjöld í krullunum, stendur upp á
borði og hann
er einkavinur Þorvaldar Sig.

Júlli bóndadrengur. Hehe getur verið andskoti
ákveðinn....samt þá býr hann út
í sveit. Hann vill láta kalla sig Júlla Morfís.

Angry fat guy! Já Bensó
fer ekki í IKEA og hann hlustar ekki á Nylon. Ég frétti að systir
Klöru í Nylon hafi komið í hléinu og látið vita af sér. Að hún
skuli þora að viðurkenna það.....
Og ég var rétt í þessu að fá upplýsingar frá
veðurstofunni. Það það mældist jarðskjálfti upp á 5,4 á richter
þegar Bensó stökk á sviðinu. Ísafjörður losnaði undan landinu
og Þór og félagar eru nú komnir
til Grænlands.

Ég var á geðlyfjum
og meiddi mig.
Jæja gott fólk, þetta er ekki ennþá búið,
nokkrir punktar eftir. Ég er kannski búinn að vera of jákvæður,
reyni að bæta það upp en ég nenni ekki að vera bitri gaurinn því ég
er ekki bitur heldur ýkt glaður.

Fattaði einhver
þetta?........ Nei ekki ég heldur.

Þessi var langbestur og
langsætastur (þess vegna valdi ég ljótustu myndina). Þessi vann
keppnina. Og átti það skilið.
Og núna ætla ég að vera reiði gaurinn,
tengist ekkert úrslitum keppnarinnar, ég ítreka að mér fannst
þau sanngjörn. Þetta tengist bara heimskum manni sem er að
reyna að vera vinsæll í Hafnarfirði og eignast loksins
vini.

Hvað í andskotanum var
að þessum manni? Litla böggið sem hann var með. Hann byrjaði á að
mæta hálftíma of seint (seinkunin). Svo þegar hann var að tilkynna
úrslitin sigtaði hann eitthvað eitt út sem Júlli sagði vitlaust af
því að þetta var dagur íslenskrar tungu. Hann minntist ekkert á öll
fokking og þau orð sem hinir sögðu. Svo að við ættum eftir 12
tíma keyrslu heim. Þarna hefði jafnvel átt að koma
Hafnfirðingabrandari. Nei. Alli Kalli öskraði þá
að hann ætti enga vini. VÍST Á ÉG VINI!! ....... Farð' ekki að
grenja.
En hann var alveg misheppnaður greyið. Hann
verður sennilega stunginn ef hann kemur til
Suðurnesjana.
Það var svo „ópen mæk“ þarna einhvers staðar
líka og einhver Flensborgari ákvað að tjá sig með níðvísum um
Suðurnesin. Þá kom Siddi og þakkaði bara kærlega
fyrir sig og sína. Klassi.

Hann er alltaf svo
undarandi á svipinn...
Við töpuðum kannski þessari keppni en samt
leið okkur öllum eins og sigurvegurum. Ég er svo vanur að tapa. FS
vann sigur því þetta hlýtur að vera einsdæmi með fjöldann sem mætti
á einhverja keppni FS. Við vorum miklu fleiri en plebbarnir í bláu
fötunum. Í fyrra mættu 4 á keppnina og ca. 5 mættu þegar
stelpurnar okkar lentu í öðru sæti í fótboltamóti
framhaldsskólanna. Það eru að ég held ekkert alltof margir sem vita
af þessum frábæra árángri í þeirri keppni.
Og svo skelltu bara allir sér á Paddys
og það voru nánast bara FS-ingar á staðnum. Ég fullyrði að ennið á
mér hefur aldrei vakið jafn mikla athygli og nú.
Jæja nóg komið af
þessu kjaftæði, ég sé mig í anda ef ég ætti að lesa svona langa
grein eftir einhvern, ég myndi skoða myndirnar og kommenta, én af
því að þetta er ég þá er nú hægt að lesa þetta. Aldrei bloggað
svona mikið og aldrei skrifað svona hetjublogg. Ég bið FS-inga
endilega um að kommenta. Þetta er FS blogg.
Takk kærlega fyrir mig.

Takk
Malaví fyrir að vera betri en við í fótbolta!

Gylfi Már #14
-blóðugur en sáttur og fer til helvítis.